Michelle frá Fortress of Inca er ótrúlega þæginlegur skór, handgerður í Peru. Hællinn er úr gegnheilu tré og er 5cm hár. Ef þú ert á milli stærða mælum við með að taka númeri minna.
Umsögn frá kúnna um Fortress of Inca skóna:
"Verð að deila sögu minni af Fortress of Inca skónum sem ég er búin að kaupa hjá ykkur. Fór með þá til skósmiðs til að láta setja undir þá (til að þola vel ísl. aðstæður) og þar voru þeir (skórnir) hlaðnir lofi. Allt 100% ekta í gegn og mjög vandað sagði hann. Hann spurði af fyrra bragði ;) Að lokum vildi hann forvitnast um verðið og sagði það ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT því hann fengi mun minna vandaða skó til sín sem kostuðu allt að 50.000 kr Svo áfram þið - þetta er geggjað og þjónustan líka
"
Klæðilegar buxur. Mjög ánægð með þær. Efnið frekar þykkt og stíft til að byrja með, en þær mýkjast við notkun. Geri ráð fyrir að endingin verði betri fyrir vikið þ.e. komi ekki göt eins og vill gerast með buxur úr þynnra gallaefni með teygju í.