
- Frí sending á pöntunum yfir 15.000
- Frítt að skipta/skila
- Umhverfisvænar vörur
- Öruggar greiðsluleiðir
- Takmarkað magn - 1 til á lager
- Inventory on the way
Viltu fókus og orku sem endist?
Ef þú ert að leita að náttúrulegri leið til að ná betri einbeitingu og stöðugri orku yfir daginn, mælum við heilshugar með þessu 100% lífrænt vottaða matcha grænte-dufti.
Matcha-duftið er unnið úr fínmöluðum japönskum grænte-laufum og er einstaklega ríkt af andoxunarefnum – allt að þrisvar sinnum meira en hefðbundið grænt te. Það inniheldur einnig fjölmörg vítamín og steinefni sem styðja við almenna vellíðan.
- Engin aukaefni
- Engir sætuefni
- Aðeins hreint og lífrænt grænte
Notkun:
Bættu einfaldlega 1 tsk. af matcha í te, latte, smoothie, bakstur eða matargerð. Það gefur mildan og fallegan grænan lit ásamt næringarríkum eiginleikum.
Þú bara verður að prófa þennan...
Matcha Piña Colada
- 1 banani
- 1 bolli frosinn ananas
- 1 tsk. lífrænt matcha
- Lúka af fersku spínati
- 1 dl kókosmjólk úr dós (þykki hlutinn)
- 25 ml vanilluprótein (valkvætt)
- Dass af köldu vatni
Aðferð: Blandaðu öllu vel saman í blandara þar til silkimjúkt. Njóttu sem næringarríks og orkugefandi drykkjar yfir daginn!