Aðrar vörur sem þú gætir haft áhuga á
Meira frá MASKA
Meira frá Allar vörur
Nýlega skoðaðar vörur
Hana buxurnar eru síðar, víðar og með afslöppuðu sniði sem gefur nútímalegt og fágað yfirbragð. Þær eru saumaðar úr hágæða efnisblöndu af lífrænni bómull, hör og lyocell sem fellur fallega og skapar mjúkt, flæðandi útlit.
Buxurnar eru með rennilás að framan og bæði hliðarvasa og vasa að aftan, sem sameinar klassískt „tailored“ snið og þægindi í daglegri notkun. Efnið hefur fallegt fall sem lyftir heildarútlitinu og gefur buxunum elegant og vandaðan karakter.
Hana buxurnar henta bæði í fágað og afslappað samhengi – paraðu þær við Haya vesti í sama lit fyrir stílhreint, samræmt sett eða við prjónaða peysu fyrir þægilegan en stílhreinan hversdagsbúning.
Efni:
Framleitt í Portúgal
Efni & umhirða
Efnið er Character Linen Organic Cotton TENCEL™ Twill – meðalþykkt og áferðarríkt efni unnið úr blöndu af hör, lífrænni bómull og TENCEL™. Það hefur fallegt, létt fall án þess að vera mjög flæðandi og heldur þannig góðri lögun á sama tíma og það er þægilegt í notkun.
Samspil náttúrulegra trefja og vandaðs vefnaðar gerir efnið bæði andar vel og endingargott. Útlitið er fágað en á sama tíma afslappað, sem gerir flíkina hentuga frá vori, yfir sumarið og fram á haust.
Umhirða: