Ullarbuxur frá Smallstuff – Pudder Melange
Mjúkar og fallegar ullarbuxur frá danska merkinu Smallstuff, úr 100% merínóull í mildum bleikum Pudder Melange lit. Merínóullin er náttúrulega öndunargóð og hjálpar til við að halda jöfnum líkamshita, svo buxurnar henta vel til daglegrar notkunar og sem hlýtt innsta lag á svalari dögum.
Hlýleg og nytsamleg gjöf fyrir þau allra yngstu. Paraðu buxurnar við samfellu eða aðrar flíkur úr sömu línu til að skapa fallegt og notalegt sett.
- Efni: 100% merínóull.
- Stærðir: 56–128
- Þvottur: Má þvo við 40°C með ullarþvottaefni.
- Þurrkun: Mega fara í þurrkara samkvæmt þvottaleiðbeiningum.
- Vottun: Ullin er vottuð samkvæmt OEKO-TEX® STANDARD 100 og hefur verið prófuð fyrir skaðlegum efnum.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.