Þessi íþróttatoppur á eftir að verða nýji uppáhalds toppurinn þinn! Veitir mikinn stuðning og mun aldrei bregðast þér. Frábær í hlaupin, yoga, crossfit eða við hvaða tækifæri sem er.
Stuðningsmestur af öllum toppum Girlfriend Collective – Paloma er bæði með fulla þekju og klæðilegt snið. Hann er með rúnuðu hálsmáli, racerback-baki og traustu stuðningsbandi sem bregst þér aldrei. Hannaður fyrir æfingar með miðlungs álagi – en virkar líka fullkomlega sem uppáhalds toppurinn þinn dags daglega. Efnið er mjúkt, andar vel, dregur í sig svita og teygist í fjórar áttir.
Helstu eiginleikar:
- Unnin úr 11 endurunnum vatnsflöskum
- Mjúkt og ógegnsætt efni (ekki gegnsætt í hreyfingu)
- Þétt, stuðningsríkt snið
- Andar vel
- Teygjanlegt í fjórar áttir
- Svitadrægt og hannað fyrir árangur
Girlfriend Collective leggja áherslu á siðferðilega framleiðslu og endurunnin efni – því gamlar vatnsflöskur og fiskinet líta betur út á þér en í ruslahaugum eða úthöfum. Þau trúa því að heilsa og vellíðan komi í öllum stærðum og gerðum, og að sýnileiki skipti máli. Þau trúa á gegnsæi, að gæta að fólkinu sem býr til fötin okkar – og að vernda jörðina skipti meira máli en gróðinn.
Stærðartafla

Efni
Frameiddur úr vottuðum endurunnum plastflöskum. Compressive efni Girlfriend Collective inniheldur 79% RPET og 21% spandex. Þvoist á lágum hita með svipuðum litum og þurrkið með því að hengja upp til að tryggja sem besta endingu.


Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Pantanir erlendis eru sendar með DHL.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.