STÆRÐ
Verð
Regular price 4,590
Regular price Sale price 4,590
Þú sparar
/
  • Umhverfisvænt
  • Öruggar greiðslur
Verð með VSK. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli.

Alpaka- og merínósokkar

Einstaklega mjúkir og hlýir sokkar úr náttúrulegri blöndu af alpaka- og merínóull. Sokkarnir eru ólitaðir og njóta því sín í sínum náttúrulega brúna lit.

Alpakaull er þekkt fyrir framúrskarandi hitastýringu. Holar trefjar ullarinnar halda fótunum hlýjum þegar kalt er en hleypa jafnframt raka frá húðinni, svo fæturnir haldast þurrir og notalegir.

Alpakaull hefur einnig náttúrulega bakteríuheftandi eiginleika sem hjálpa til við að draga úr óæskilegri lykt og gera sokkana einstaklega þægilega til daglegrar notkunar.

Sokkarnir eru framleiddir í Portúgal og forþvegnir í framleiðslu til að koma í veg fyrir að þeir hlaupi í þvotti og tryggja að þeir haldi lögun sinni.

Efni

  • 66% ull
  • 28% alpakaull
  • 5% endurunnið pólýamíð
  • 1% elastan

Umhirða

Þvoist í þvottavél við 30°C og 800 snúninga. Má fara í þurrkara við lágan hita.

Sendingarmáti

Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.

Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.

Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.

Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.

Þú gætir einnig haft áhuga á þessum vörum
Meira frá: ABOUT COMPANIONS
Meira frá: Allar vörur
Nýlega skoðað