Þessi prjónaða pólópeysa er í yfirstærðarsniði (oversized) með kassalaga sniði og örlítið lengri lengd. Hún er með mjög síðum öxlum, örlítið lengri ermum með víðu og beinu sniði. Hálsmálið er kringlótt með kraga og hnappalista með þremur hnöppum.
Efni
100% lífræn bómull
Peysan er prjónuð úr 100% lífrænni bómull og er því þyngri en flíkur sem innihalda ull eða gervitrefjar. Efnið andar vel og er einstaklega þægilegt í notkun.
Snið
Þessi flík er í oversized fit.
Umhirða
Þessi flík er úr lífrænni bómull og því auðveld í umhirðu:
- Þvoist á viðkvæmu prógrammi við allt að 30°C.
- Notið milt þvottaefni eða þvottaefni fyrir litaðan fatnað.
- Mælt er með að nota þvottapoka til að verja flíkina fyrir rennilásum og öðrum hlutum sem geta skemmt hana í þvottavélinni.
- Straujið við lágan til meðalhita.
Vottun
Þessi vara er GOTS-vottuð (Global Organic Textile Standard). Það þýðir að hún er framleidd úr náttúrulegum trefjum frá vottaðri lífrænni ræktun og uppfyllir strangar kröfur GOTS um bæði umhverfisvernd og félagslega ábyrgð í framleiðsluferlinu.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.