Klassískir merínósokkar – kolgráir
Einstaklega mjúkir og léttir sokkar úr mulesing-frírri merínóull, framleiddir á ábyrgan hátt í Portúgal.
Merínóull er náttúruleg hátæknitrefja sem er mjúk við húð, létt og kláðalaus. Ullin hefur náttúrulega bakteríuheftandi eiginleika sem hjálpa til við að koma í veg fyrir óæskilega lykt. Hún leiðir raka frá húðinni, þornar hratt og heldur fótunum þægilegum.
Merínóull þarf jafnframt sjaldnar að þvo en mörg önnur efni – oft nægir einfaldlega að viðra sokkana til að halda þeim ferskum lengur.
Sokkarnir eru forþvegnir í framleiðslu til að koma í veg fyrir að þeir hlaupi í þvotti og til að tryggja að þeir haldi lögun sinni.
Efni
- 85% merínóull
- 13% endurunnið pólýamíð
- 2% elastan
Umhirða
Handþvottur eða þvottur á viðkvæmu prógrammi við lágan hita og mest 800 snúninga.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.