NERA prjónavesti úr ull og kasmír – Morel Brown
Mjúkt og vandað prjónavesti úr merínóullar- og kasmírblöndu. Vestið er stutt með afslappaðri vídd, hringmáli með stroffi og snyrtilegum frágangi við handveg.
Meðalþykkt prjónið gerir vestið að fjölhæfri flík sem hentar yfir aðrar flíkur allt árið. Fallegt yfir uppáhaldsskyrtuna eða kjólinn og bætir bæði hlýju og fáguðu yfirbragði við klæðnaðinn. Ullar- og kasmírblandan er einstaklega mjúk við húðina.
- Stutt snið með afslappaðri vídd
- Hringmál með stroffi
- Snyrtilegur frágangur við handveg
- Meðalþykkt prjón sem hentar allt árið
- RWS-vottuð ull (Responsible Wool Standard)
- Framleitt í Litháen
Stærð og snið
- Hefðbundið snið
- Fyrirsætan er 175 cm á hæð og klæðist stærð S
- Við mælum með að þú veljir þína venjulegu stærð
Efni: 90% ull og 10% kasmír.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.