TRIBECA Leather Preto Black
TRIBECA er klassískur og þægilegur loafer-skór sem hentar fullkomlega frá hausti og fram á vor. Skórnir eru handgerðir í Portúgal úr mjúku, jurtaötuðu leðri og sameina tímalausan stíl og einstök þægindi.
Dúskurinn gefur skónum fallegan karakter án þess að vera of áberandi. Þeir passa vel við gallabuxur, sniðnar buxur og hversdagslegar samsetningar.
Innlegg VIBAe mótast smám saman að fætinum og verður þægilegra með hverju skrefi. Leðrið mýkist með notkun og fær fallega áferð með tímanum, sem gerir hvert par einstakt.
- Ytra efni: Jurtaðað portúgalskt leður
- Innlegg: Carbon Step™ mótað og bakteríudrepandi innlegg fyrir góðan stuðning og þægindi
- Ytri sóli: Sveigjanlegur náttúrulegur gúmmísóli með góðu gripi
- Ábyrg framleiðsla: LWG-vottað leður úr aukaafurðum matvælaiðnaðarins
Um Carbon Step™
Carbon Step™ er laus innleggssóli sem mótast að fætinum og styður náttúrulega hreyfingu. Hann veitir góðan stuðning og aðlagast smám saman að lögun fótarins fyrir einstaklingsmiðað þægindi.
Umhirða
Mælt er með vatnsfráhrindandi spreyi, helst vistvænu. Gott er að bera reglulega á leðrið með góðu leðurnærandi kremi.
Athugið að svartur litur getur smitast örlítið í fyrstu notkun.
VIBAe skór eiga að sitja þétt að fæti í fyrstu og ekki þarf að gera ráð fyrir aukaplássi fremst við tærnar.
Auðveldasta leiðin til að fara í skóna er að setja tána fyrst vel fram í skóinn, þrýsta fætinum alla leið fram á meðan skórinn er við gólfið og lyfta hælnum svo upp í lokin.
Við notkun teygjast skórnir um það bil hálft númer og aðlagast fætinum smám saman. Því meira sem þú notar þá, því þægilegri verða þeir.
Stærðartafla

Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.