ANN munstruð prjónapeysa
ANN er munstruð peysa hönnuð í samstarfi við prjónalistakonuna Ann Bonander Looft og innblásin af ást hennar á mohair. Peysan er grófprjónuð úr blöndu af kid mohair og silki sem gefur henni létta, loftmikla áferð og fallegan gljáa. Sniðið er vítt og örlítið sítt, hlýtt og notalegt. Falleg við bæði gallabuxur og klassískar buxur.
-
Vítt og afslappað snið
-
Örlítið sítt snið
-
Gróft prjón með léttri og loftmikilli áferð
-
Hönnuð í samstarfi við Ann Bonander Looft
Efni
Mjúk og gljáandi blanda af kid mohair og silki. Mohair-ullin kemur frá vandlega völdum búgörðum í Suður-Afríku og silkið frá Kína, með vottaðan rekjanleika. Garnið er litað í hespum og burstað til að gefa því aukna mýkt, léttleika og gljáa.
Spunaverksmiðjan fylgir viðmiðum GOTS um framleiðslu með minni umhverfisáhrifum.
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.