Aya eru síðar flauelsbuxur með beinum, víðum skálmum og pressubrotum að framan sem gefa þeim fágað yfirbragð. Þær henta jafnt hversdags sem við fínni tilefni og fara fallega við fínprjónaðan topp og lága hælaskó.
Buxurnar eru saumaðar í Portúgal úr endingargóðu, breiðröndóttu kordflaueli frá Þýskalandi. Efnið er úr 100% GOTS-vottaðri lífrænni bómull og er auðvelt í umhirðu. Þær lokast að framan með tveimur krækjum.
Hver flík er lituð eftir saumaskap, sem gefur henni sín sérkenni. Smávægilegur litamunur er því eðlilegur og hluti af yfirbragði efnisins.
Stærð og snið
- Hefðbundið snið með beinum, víðum skálmum.
- Veldu þína venjulegu stærð.
- Fyrirsætan er 175 cm á hæð og klæðist stærð S.
Efni og umhirða
- 100% GOTS-vottuð lífræn bómull.
- Breiðröndótt kordflauel.
- Framleiddar í Portúgal.
- Má þvo í þvottavél á mildu þvottakerfi.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.