FAYA eru gallabuxurnar sem gefa hversdagslúkkinu strax meira form og karakter. Barrel-sniðið er nútímalegt og einstaklega klæðilegt, með rúmgóðu sniði um mjaðmir og læri sem mjókkar fallega niður að ökkla. Saumurinn að framan dregur fram línurnar í sniðinu og gefur buxunum fágað, mótað yfirbragð.
Þær sitja þægilega í mittishæð og eru úr vönduðu denimefni sem heldur vel lögun en hefur örlítinn teygjanleika fyrir aukin þægindi. Auðvelt er að para þær við allt frá einföldum bol og strigaskóm yfir í skyrtu, prjón og hæla.
Buxurnar eru með klassísku fimm vasa sniði og lokast með rennilás og tölu.
Efni
99% lífræn bómull
1% elastan
Denimefnið hefur klassíska og sterka áferð en örlítið teygjanleiki gefur aukin þægindi og hreyfanleika.
Snið
- Barrel-snið
- Sitja í mittishæð
- Rúmgóðar um mjaðmir og læri og mjókka niður
- Innanfótarlengd er 73,5 cm í öllum stærðum
Josi er 175 cm á hæð og klæðist stærð S.
Ronja er 175 cm á hæð og klæðist stærð S.
Umhirða
- Þvoið á vægu þvottakerfi við allt að 30°C
- Þvoið á röngunni
- Notið milt þvottaefni eða þvottaefni fyrir litaðan fatnað
- Strauið við lágan til meðalhita
Vottun
Gallabuxurnar eru GOTS-vottaðar. GOTS-vottunin gerir strangar kröfur til bæði umhverfislegra og samfélagslegra þátta í öllu framleiðsluferlinu.
Framleiðsla
Denimefnið er ofið og fullunnið í Tyrklandi. Tölur, rennilásar og hnoð eru framleidd í Tyrklandi og á Spáni.
Gallabuxurnar eru framleiddar hjá GOTS-vottuðum denimframleiðanda í Tyrklandi með áratuga reynslu af framleiðslu á hágæða denimefnum.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.