STÆRÐ
Verð
Regular price 20,990
Regular price Sale price 20,990
Þú sparar
/
  • Umhverfisvænt
  • Öruggar greiðslur
Verð með VSK. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli.

Fallegt og fágað satínpils sem lyftir bæði hversdags- og sparilegri klæðnaði. Pilsið er beint í sniði, situr þægilega í mittishæð og fellur mjúklega niður eftir líkamanum. Silkimjúk áferðin og fallegur gljáinn gefa því elegant yfirbragð, á meðan teygjan í mittinu tryggir þægindi allan daginn.

Fullkomið með einföldum bol og strigaskóm fyrir afslappað lúkk eða með skyrtu og hælum þegar tilefnið kallar á aðeins meira.

Efni
100% asetat (Naia™ Renew Satin)

Naia™ Renew Satin er létt, ofið efni úr viðarkvoðu úr plönturíkinu. Það hefur mjúka, silkimjúka áferð, fallegt náttúrulegt fall og glansandi yfirborð. Fínleg, örlítið krumpuð áferð gefur efninu aukinn karakter.

Snið
Beint og klassískt snið með teygju í mitti.

Ronja er 175 cm á hæð og klæðist stærð S.
Anna C. er 177 cm á hæð og klæðist stærð S.

Umhirða

  • Þvoið á vægu þvottakerfi við allt að 30°C
  • Notið milt þvottaefni eða þvottaefni fyrir litaðan fatnað
  • Strauið við lágan hita

Uppruni efnis

  • Hráefni: Tyrkland
  • Garnframleiðsla: Bandaríkin
  • Litun og frágangur: Tyrkland

Framleiðsla
Pilsinu er saumað í Szubin í Póllandi hjá fjölskyldureknu fyrirtæki sem sérhæfir sig í vandaðri framleiðslu á flíkum úr ofnum efnum.

Sendingarmáti

Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.

Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.

Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.

Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.

Þú gætir einnig haft áhuga á þessum vörum
Meira frá: Jan N June
Nýlega skoðað