Aðrar vörur sem þú gætir haft áhuga á
Meira frá MASKA
Meira frá Allar vörur
Nýlega skoðaðar vörur
Hisa buxurnar eru með víðu, styttra sniði (cropped) og lægra klofi, og eru með bæði vasa að framan og aftan. Þær eru gerðar úr hágæða efnisblöndu af lífrænni bómull, hör og lyocell, sem hefur fallega áferð og mjúkt, flæðandi fall.
Hisa buxurnar eru sannkölluð grunnflík í fataskápinn og auðvelt er að para þær við mismunandi stíla – til dæmis með skyrtu fyrir fágað skrifstofuútlit eða með prjónaðri peysu fyrir afslappaðan en stílhreinan hversdagsbúning.
Efni:
Framleitt í Portúgal
Módelið er 175 cm á hæð og klæðist stærð S.
Sniðið er hefðbundið (regular fit) og mælum við með að velja þína venjulegu stærð.
Efni & umhirða
Efnið er svokallað Character Linen Organic Cotton TENCEL™ Twill – meðalþykkt efni með áferðarríkri vefnaðartækni úr blöndu af hör, lífrænni bómull og TENCEL™. Það hefur létt fall án þess að vera mjög flæðandi og veitir þannig gott jafnvægi milli forms og þæginda. Áferðin er bæði fáguð og afslöppuð, sem gerir flíkina fjölhæfa í notkun.
Náttúrulegar trefjarnar og vefnaðurinn tryggja góða öndun og endingu, sem gerir efnið hentugt frá vori og yfir sumarið og fram á haust.
Umhirða: