Kavat Karlbo kuldaskór – Light Brown
VÆNTANLEGUR Í SEPTEMBER
Viltu fá tilkynningu um leið og skórnir koma? Veldu þá skóstærð sem þig vantar og skráðu þig á biðlista. Þú færð tölvupóst um leið og stærðin er komin aftur á lager.
Karlbo er hlýr og vandaður kuldaskór fyrir börn, með klassísku útliti og fallegum mokkasínsaumi að framan. Skórinn er úr krómfríu leðri frá Kavat sem er mjög vatnsfráhrindandi og hentar vel fyrir íslenskt vetrarveður.
Karlbo er fóðraður með 50% ull og 50% pólýester. Ullin veitir góða einangrun og hjálpar til við að halda fótunum hlýjum, á meðan pólýesterinn eykur slitþol. Innleggið er einnig úr ullarblöndu og hægt er að taka það úr skónum.
Skórnir eru með tveimur frönskum rennilásum sem gera þá auðvelda í notkun og einfalt að stilla að fætinum. Hærra skaftið veitir góðan stuðning og hjálpar til við að halda snjó frá skónum. Mynstruð TPR-sól gefur gott grip á vetrardögum.
Helstu eiginleikar:
- Krómfrítt og mjög vatnsfráhrindandi leður
- Hlýtt fóður úr 50% ull og 50% pólýester
- Úrtakanlegt ullarblöndu innlegg
- Tvöfaldir franskir rennilásar
- Hærra skaft sem veitir góðan stuðning
- Gripgóð TPR-sól
- PFAS-fríir
- Stærðir 22–32
Stærðarráð:
Kavat mælir með um 1,5–2 cm vaxtarrými í kuldaskóm. Mælið því fót barnsins vel og berið saman við innanmál skósins áður en stærð er valin.
Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.