-
Umhverfisvænt
-
Öruggar greiðslur
Liz SS W. Collar frá Basic Apparel er stutterma prjónabolur úr 100% RWS-vottaðri merínóull. Bolurinn er með sígildu sniði og lausum kraga sem gefur honum fágað yfirbragð. Taktu kragann af fyrir einfaldara útlit sem fer vel við gallabuxur eða hafðu hann á og paraðu bolinn við pils eða sparibuxur.
Fín merínóullin er létt og mjúk við húðina. Hún andar vel, veitir léttan yl og hjálpar líkamanum að halda jöfnum hita. Því er þægilegt að klæðast bolnum einum og sér eða undir jakka á svalari dögum.
Mál flíkur
| Stærð | Brjóstmál | Sídd |
|---|---|---|
| XS | 87 cm | 52 cm |
| S | 91 cm | 53 cm |
| M | 95 cm | 54 cm |
| L | 99 cm | 55 cm |
| XL | 103 cm | 56 cm |
| XXL | 109 cm | 56 cm |
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.