STÆRÐ
Verð
Regular price 37,990
Regular price Sale price 37,990
Þú sparar
/
  • Umhverfisvænt
  • Öruggar greiðslur
Verð með VSK. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli.

NORD ullarpeysa – ljósgrá

Hlý og þykk prjónapeysa úr ólitaðri alpakka- og merínóull. Náttúrulegir litir ullarinnar fá að njóta sín án litunar og gefa peysunni fallegt, tímalaust yfirbragð. Beint, hefðbundið snið hentar jafnt í vinnuna og frítímann.

Peysan er prjónuð í snið með svokallaðri „fully fashioned“ aðferð sem eykur endingu og lágmarkar efnisafganga við framleiðslu. Hún er forþvegin til að draga úr rýrnun við þvott. Ullin hrindir náttúrulega frá sér óhreinindum og þarf því sjaldnar að þvo hana.

  • Hlý og þykk ullarblanda
  • Beint, hefðbundið snið
  • Ólituð ull í náttúrulegum ljósgráum tón
  • Vandað garn sem heldur lögun sinni
  • Forþvegin til að lágmarka rýrnun
  • Framleidd í Litháen

Efni: 30% alpakkaull og 70% fín merínóull, ólituð.
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur eða handþvottakerfi í þvottavél. Ekki vinda í þeytivindu.

Sendingarmáti

Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.

Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.

Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.

Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.

Þú gætir einnig haft áhuga á þessum vörum
Meira frá: ABOUT COMPANIONS
Nýlega skoðað