Siri – vatnsheld stígvél frá WODEN
Siri eru slitsterk og vatnsheld stígvél úr 70% náttúrulegu gúmmíi og 30% endurunnu gúmmíi. Hönnunin er stílhrein og tímalaus með góðu gripi í sólanum og fallegum smáatriðum úr fiskileðri á hælnum.
Innleggssólinn er úr mjúkum PU-svampi sem er bæði léttur og höggdeyfandi. WODEN Air Flow System™ stuðlar að góðri loftun á meðan EVA-sólinn með Natural Soft Technology™ veitir mýkt og þægindi við hvert skref.
Siri eru létt, þægileg og praktísk stígvél – frábær félagi í rigningu og bleytu.
Stærð og snið
Siri eru lítil í stærð og mælt er með að taka einni stærð stærra en venjulega.
Efni og eiginleikar
- 70% náttúrulegt gúmmí og 30% endurunnið gúmmí
- Vatnsheld
- Létt hönnun
- EVA-sóli með WODEN Natural Soft Technology™
- Smáatriði úr fiskileðri
- Mjúkur og höggdeyfandi PU-innleggssóli
- Korkinnleggssóli með WODEN Air Flow System™
- Góður stuðningur og þægindi

Sendingarmáti
Þegar þú verslar hjá Ethic getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 20.000 kr eða meira eru vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Einnig hægt að velja að sækja í verslunina okkar EKOhúsið í Síðumúla 37 á opnunartíma 11-18 virka daga og 12-16 á laugardaga.
Vetraropnum frá 1.september-31.maí virkir dagar 11-18 og laugardaga 12-16.
Sumaropnun frá 1.júní - 31.ágúst virkir dagar frá 10-17 og laugardaga 12-16.
Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef þarf að skila vörum.